Ég sjálfur
Ég heiti Grétar Orri Kristinsson og er frá Akureyri, bý núna í Skövde í Svíþjóð. Ég er 25 ára og er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Ég hef mjög gaman að leiklist og flest öllu sem snýr að tölvum. Ég hef leikið í fjórum leikritum það sem af er þ.e. "Dýrin í Hálsaskógi" hjá Leikfélagi Akureyrar, "Sjö stelpur" hjá Leikfélagi Menntaskólans á Akueyri (L.M.A.), "Ferðin á Heimsenda" hjá L.M.A. og nú síðast í "Kabarett" hjá L.M.A. Síðustu sumur hef ég unnið á Hótel Eddu Akureyri og sinnt þar öllum mögulegum störfum s.s. afgreiðslumaður í gestamóttöku, þrif herbergjum, þjóna við morgun- og kvöldverð o.fl. Veturinn 2000-2001 vann ég sem þjónn á nokkrum veitingastöðum á Akureyri sem Bautinn hf. rekur. Fyrst á ítalska veitingastaðnum La Vita è Bella og á Kaffi-Torginu á sama tíma og frá og með 1. febrúar 2001 vann ég á Bautanum sjálfum. Ég stunda nú nám við líftölvunarfræði (Bioinformatics) við Tölvuháskólann í Skövde í Svíþjóð. Þessa stundina er ég leggja lokahönd á lokaverkefnið mitt í líftölvunarfræði og eftir það fer maður að litast um eftir vinnu! Hvar maður endar í vinnu er stóra spurningin en ég er viss um að það kemur í ljós eftir áramót! Tölvur
www.ibm.com
www.fujitsu.com
Líftölvunarfræði

Gönguskíði
Skíðasamband Íslands
Hvað er Vasaloppet?
Skíðasíða
Telemark skíðaverslun
Skíðamiðstöð